Barcelona vann Meistaradeildina

Viktor Gísli Hallgrímsson vann í dag Meistaradeildina með liði sínu Barcelona, en Barca vann Füchse Berlin 37-34 í úrslitaleiknum í dag.

Barcelona höfðu slegið út Álaborg í undanúrslitunum og Füchse Berlin slógu Magdeburg út í gær.

Línumaðurinn öflugi Sousa Frade var markahæstur hjá Barcelona með 7 mörk og Mathias Gidsel var markahæstur hjá Füchse Berlin með 8 mörk.

Viktor Gísli, sem varði eitt skot í dag, getur því fagnað sigri í Meistaradeildinni og bætist í hóp þeirra allra bestu sem geta státað sig af því að hafa unnið Meistaradeildina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top