Freyja Jónsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH og leikur því með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Freyja sem fædd er árið 2009 gekk til liðs við FH í upphafi síðasta tímabils frá uppeldisfélagi sínu Stjörnunni. Hún var þrívegis í hóp hjá FH í Grill66-deildinni eftir áramót auk þess að leika með 3.flokki félagsins. ,,Freyja er efnilegur vinstri hornamaður sem hefur verið í æfingahópum yngri landsliða Íslands. Við erum virklega ánægð með að Freyja hafi framlengt samninginn sinn við félagið og hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna í FH-treyjunni á næstu árum," segir í tilkynningunni frá FH. FH verður í Grill66-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa tapað gegn Stjörnunni í undanúrslitum í umspili um laust sæti í Olís-deildinni. Auk FH verða Selfoss, Fjölnir og Afturelding í Grill66-deildinni og þá verða einnig fjögur venslalið, Grótta 2, Fram 2, HK 2 og Valur 2.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.