Magdeburg unnu Álaborg í fyrri leik dagsins og unnu þar með brons verðlaun í Meistaradeildinni í ár. Eftir vonbrigðin í gær að hafa tapað undanúrslitaleiknum gegn Füchse Berlin, sóttu Magdeburg bronsverðlaunin eftir 26-32 sigur á Álaborg. Þetta er í fyrsta skiptið sem Magdeburg spilar bronsleikinn. Mads Hoxer var markahæstur hjá Álaborg með 6 mörk og þeir Albin Lagergren og Felix Claar skoruðu báðir 6 mörk fyrir MAgdeburg. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu 4 mörk hvor en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.