Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að SC Magdeburg féll úr leik gegn Füchse Berlin í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í Köln í gær. Liðið leikur því til bronsverðlauna gegn Álaborg í dag en Ómar Ingi lék með Álaborg á árunum 2018-2020 áður en hann gekk í raðir SC Magdeburg. Magdeburg tapaði leiknum í gær með fimm mörkum, 35-40 og missti þar með af tækifærinu til að verja Evrópumeistaratitil sinn. Ómar Ingi skoraði níu mörk í leiknum. „Það eru bara vonbrigði núna. Ég er virkilega svekktur. Við vildum vinna leikinn og komast í úrslitaleikinn til að eiga möguleika á titlinum, en við spiluðum einfaldlega ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi eftir leikinn í samtali við Hbold. Magdeburg átti í miklum vandræðum með að hemja hraða sóknarleik Berlínarliðsins og sérstaklega reyndust hraðaupphlaup Berlínarliðsins, dýrkeypt fyrir ríkjandi Evrópumeistarana. „Við náðum ekki að koma skipulagi á varnarleikinn okkar og þeir skoruðu allt of mörg mörk úr hraðaupphlaupum,“ sagði hann. „Þeir voru einnig mjög sterkir varnarlega. Það verður að segjast eins og er. Þeir voru fullkomlega einbeittir og við fengum ekkert gefins. Þeir spiluðu mjög vel og það þarf að viðurkenna það,“ sagði hann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.