Landsliðskonan verður áfram á Ásvöllum
Sævar Jónasson

Vinstri hornamaður Hauka í Olís-deild kvenna og íslenska landsliðsins, Rakel Oddný Guðmundsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Hauka.

,,Rakel átti virkilega gott tímabil á síðasta ári þar sem hún steig skref fyrir skref upp og sýndi hversu mikilvæg hún er fyrir liðið," segir meðal annars í tilkynningunni frá Haukum en Rakel Oddný gerði sér lítið fyrir og skoraði 147 mörk í deild og úrslitakeppninni fyrir Hauka á síðustu leiktíð.

Þá vann hún sér inn landsliðssæti í íslenska landsliðinu sem tryggði sér sæti á EM sem fram fer í desember.

,,Framlengingin er því bæði mikilvæg staðfesting á þeirri miklu vinnu sem Rakel hefur lagt á sig og sterkt merki um metnaðinn sem býr í hópnum. Hún er leikmaður sem leiðir með fordæmi og heldur áfram að þróast ár frá ári. Við erum spennt að sjá Rakel halda áfram í rauðu, byggja ofan á þetta glæsilega tímabil og taka næstu skref með liðinu á komandi leiktíð," sagði ennfremur í tilkynningunni frá Haukum.

Rakel Oddný var næst markahæsti leikmaður Hauka á síðustu leiktíð en Haukar duttu út í undanúrslitum Íslandsmótsins í oddaleik gegn ÍBV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top