U-16 ára landslið kvenna lék tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum um helgina en leikirnir fóru báðir fram í Virkinu, heimavelli Víkings. Fyrri leikurinn fór fram á laugardaginn þar sem þær færeysku höfðu betur með sex marka mun 27-33 en Sara Sveinsdóttir var markahæst í liði Íslands í þeim leik með níu mörk og Kristín Einarsdóttir kom næst með sex mörk. Íslensku stelpurnar höfðu hinsvegar betur í leiknum á sunnudeginum. Íslensku stelpurnar unnu eins marks sigur 27-26 þar sem Kristín Einarsdóttir var markahæst með níu mörk. Sara Sveinsdóttir og Tinna Dröfn Hauksdóttir skoruðu sex mörk hvor í leiknum. Þjálfarar liðsins eru Einar Jónsson og Rakel Dögg Bragadóttir en stelpurnar eru á leið til Gautaborgar í byrjun júlí og leika þar á Opna Evrópumótinu. Markaskorarar Íslands í leiknum á laugardag: Sara Sveinsdóttir 9 Kristín Einarsdóttir 6 Anja Gyða Vilhelmsdóttir 3 Helga Jenný Vigfúsdóttir 3 Sara Sigurvinsdóttir 2 Emilía Guðný Magnúsdóttir 1 Hrefna Dís Valgeirsdóttir 1 Tinna Dröfn Hauksdóttir 1 Bjartey Hanna Gísladóttir 1 Markaskorarar Íslands í leiknum á sunnudag: Kristín Einarsdóttir 9 Tinna Dröfn Hauksdóttir 6 Sara Sveinsdóttir 6 Sara Sigurvinsdóttir 2 Emilía Guðný Magnúsdóttir 2 Helga Jenný Vigfúsdóttir 2

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.