Kvennalið ÍR hefur bætt við sig markmanni fyrir komandi tímabil í Olís-deildinni en Elísa Helga Sigurðardóttir hefur gengið í raðir félagsins. Elísa Helga sem er fædd árið 2004 gengur í raðir ÍR frá Haukum þar sem hún hefur verið varamarkvörður á eftir Söru Sif Helgadóttur. ,,Við ÍR-ingar bindum miklar vonir við hennar komu og hlökkum til að sjá hana taka næstu skref í Skógarselinu á á komandi árum," segir í tilkynningunni frá ÍR. Davíð Georgsson er nýráðinn þjálfari kvennaliðs ÍR en þetta er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sumar en Elísa Helga hafði skrifað undir við ÍR þegar Grétar Áki Andersen var enn við stjórnvölinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.