HSÍ opnar í dag almenna miðasölu á leiki Íslands á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar 2027. Miðasalan hefst klukkan 12:00. Miðasala fer fram í gegnum Stubb og verður hlekkur á miðasöluna birtur þegar salan opnar. 15. janúar 2027 Auk þess verða miðar í boði á eftirfarandi leiki í milliriðli í Hannover: Aðeins er hægt að kaupa miða á staka leiki og er miðafjöldi takmarkaður. Þegar miðakaupum er lokið í gegnum Stubb geta liðið nokkrir dagar þar til miðarnir berast á það netfang sem gefið er upp við kaup. Afhendingartími ræðst af álagi hverju sinni og eru stuðningsmenn beðnir um að sýna biðlund. HSÍ hvetur alla stuðningsmenn íslenska landsliðsins til að tryggja sér miða tímanlega og vera með liðinu í Þýskalandi á HM 2027. Miðasöluhlekkurinn fer í loftið klukkan 12:00 í dag og verður birtur á öllum miðlum og fréttaveitum HSÍ um leið og salan opnar.
Hægt verður að kaupa miða á eftirfarandi leiki Íslands í H-riðli sem leikinn verður í Magdeburg:
Ísland - Barein
16. janúar 2017
Ísland - Japan
17. janúar 2027
Ísland - Norður-Makedónía
21. janúar 2027
Fyrsti leikur Íslands í milliriðli
25. janúar 2027
Þriðji leikur Íslands í milliriðli
Athygli er vakin á því að uppselt er á leik Íslands í milliriðli þann 23. janúar 2027.
Börn fjögurra ára og yngri þurfa ekki að kaupa miða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.