Framlengdi við Fram rétt fyrir brottför til Kína
Sævar Jónasson

Dagmar Guðrún Pálsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fram. Félagið tilkynnti þetta nú rétt í þessu.

Dagmar Guðrún var orðuð við þrefaldra meistara Vals eftir að Thea Imani Sturludóttir gekk í raðir Craiova í Rúmeníu en nú er ljóst að Dagmar hefur ákveðið að leika áfram í herbúðum Fram og berjast um stöðuna í hægri skyttunni við Lenu Margréti Valdimarsdóttur sem gengur aftur í raðir Fram í sumar eftir eins árs dvöl hjá Skara í Svíþjóð.

Dagmar er á leið til Kína annað kvöld þar sem hún leikur á HM U20 með íslenska landsliðinu en hún hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands síðustu ár.

Markmiðið er að fara áfram - Annað væri furðulegt

Tímabilið 2024/2025 lék Dagmar Guðrún á láni hjá ÍR í Olís-deildinni. Dagmar skoraði 74 mörk fyrir Fram í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni á síðustu leiktíð en liðið tapaði gegn Val í undanúrslitum Íslandsmótsins 3-0. Hún varð þar með sjötti markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top