U16 ára kvenna landslið Íslands er mætt til Svíþjóðar þar sem liðið leikur í opna Evrópumótinu sem fram í Gautaborg næstu daga samhliða stærsta handboltamóti í heimi, Partille Cup sem fram fer í Gautaborg á sama tíma. Þar taka fjölmargir íslenskir krakkar þátt á mótinu frá fjölmörgum félögum. Þjálfarar íslenska landsliðsins eru þau Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson. Fyrsti leikur Íslands fer fram á morgun þegar liðið leikur gegn Króatíu klukkan 8:30 og seinni leikur liðsins á morgun verður gegn Tékkum klukkan 13:30. Liðið leikur síðan einnig tvo leiki á þriðjudaginn þegar stelpurnar mæta Ungverjalandi og síðan Litháen í lokaleik riðilsins. Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: Anja Gyða Vilhelmsen Valur
Bjartey Hanna Gísladóttir Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir HK
Helga Jenný Vigfúsdóttir HK
Hrefna Dís Valgeirsdóttir Haukar
Katrín Ásta Jóhannsdóttir ÍR
Kristín Einarsdóttir HK
Matthildur Helga Ólafsdóttir Valur
Sara Sigurvinsdóttir Valur
Sara Sveinsdóttir Valur
Soffia Helen Sölvadóttir Grótta
Tanja Harðardóttir ÍBV
Tinna Dröfn Hauksdóttir HK
Þórhildur Káradóttir Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.