Guðrún Hekla Traustadóttir fór á kostum í liði íslenska landsliðsins skipað leikmönnum 20 ára og yngri sem vann ellefu marka sigur á Gíneu í morgun 31-20. Guðrún Hekla gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk úr ellefu skotum og var lang markahæst í liði Íslands í leiknum. Íslenska liðið hóf leikinn af krafti og skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins. Eftir það var aldrei spurning hvert sigurinn myndi fara en íslenska liðið náði mest átta marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 13-5 en staðan var 15-7 í hálfleik. Það sama var upp á teningnum í seinni hálfleiknum þar sem íslenska liðið náði mest tólf marka forystu í stöðunni 30-18. Lokatölur eins og fyrr segir 31-20 og íslenska liðið því með fjögur stig í milliriðlinum í Forsetabikarnum eftir tíu marka sigur á Bandaríkjunum í lokaleik sínum í riðlakeppninni. Ísland mætir Alsír í úrslitaleik riðilsins á morgun klukkan 03:45 á íslenskum tíma. Alsír vann Bandaríkin í morgun með fjórum mörkum 30-26 og Gínea fyrr í keppninni með þremur mörkum 24-21. Sigurvegarar riðilsins keppa um 17.-20. sæti á mótinu á meðan 2.sætið leikur um 21.-24. sæti mótsins. Markaskorarar Íslands: Guðrún Hekla Traustadóttir 11, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 4, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 4, Arna Karítas Eiríksdóttir 2, Inga Fanney Hauksdóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1, Sara Rún Gísladóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.