Landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson hefur fundið sér nýtt félag og verður kynntur til leiks á allra næstu dögum. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Bjarki Már náð munnlegu samkomulagi við félagið og er einungis eftir að ganga frá formsatriðum áður en félagaskiptin verða gerð opinber. Samningur Bjarka Más Elíssonar við ungverska félagið Veszprém rennur út í dag og hefur framtíð hans verið til umræðu síðustu vikur. Samkvæmt heimildum Handkastsins er samkomulagið nú í höfn og ekkert sem bendir til annars en að hann verði kynntur sem nýr leikmaður félagsins á allra næstu dögum. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða félag Bjarki Már mun ganga til liðs við en Handkastið mun greina frá því um leið og félagið staðfestir félagaskiptin opinberlega. Á dögunum greindi Handkastið frá því að Bjarki Már hafi neitað rúmenska félaginu, Dinamo Bucuresti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.