Gísli Steinar Jónsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari 3. og 4. flokks kvenna hjá Víking auk þess sem hann verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og verður þar Evu Hrund Harðardóttur til halds og traust en hún tók við liðinu af Sebastian Alexanderssyni. Kvennalið Víkings leikur í Olís-deild kvenna á komandi tímabili í fyrsta skipti í langan tíma. Í tilkynningunni frá félaginu segir að félagið hafi ráðið Gísla Steinar í mikilvægt hlutverk innan félagsins þar sem hann mun taka þátt í uppbyggingu kvennaboltans sem aðalþjálfari 3. og 4. flokks kvenna ásamt því að vera aðstoðarþjálfari Meistaraflokks kvenna. Gísli Steinar hefur undanfarin ár þjálfað 3. og 4.flokk kvenna hjá ÍBV þar sem hann er fæddur og uppalinn. Þá hefur hann einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni ásamt því að sinna þjálfun meistaraflokks kvenna. Fyrir þann tíma bjó hann í Noregi og þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár. ,,Það eru spennandi tímar framundan í félaginu. Mikil fjölgun iðkenda og verður gaman að taka þátt í uppbyggingu Víkings. Aðstæður eru góðar og gott fólk sem heldur utan um félagið. Nú er félagið búið að fara í gegn um endurnýjun lífdaga í fótboltanum á síðustu árum og fann ég fyrir miklum vilja að gera slíkt hið sama handboltamegin í félaginu” segir Gísli. Eva Hrund Harðardóttir, aðalþjálfari meistaraflokks kvenna, lýsir yfir ánægju sinni: „Ég er virkilega ánægð með að fá Gísla til liðs við okkur. Hann hefur tekið þátt í öflugu uppbyggingarstarfi hjá ÍBV og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem ég er sannfærð um að muni nýtast okkur vel. Ráðning hans er mikilvægt skref í þeirri vegferð sem við erum á og ég hlakka til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfs handknattleiksdeildar Víkings."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.