Marte leikur ekki með Selfossi á næstu leiktíð
Sævar Jónasson

Leikstjórnandinn, Marte Syverud hefur yfirgefið Selfoss eftir hálfs árs dvöl hjá félaginu. Þetta staðfesti Eyþór Lárusson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið.

Marte Syverud gekk til liðs við félagið frá Lilleström undir lok síðasta árs og lék með liðinu seinni hluta tímabilsins á síðustu leiktíð. Marte er yngri systir Miu Kristinar Syverud sem lék einnig með Selfossi á síðustu leiktíð en nú er ljóst að þær hafa báðar yfirgefið félagið.

Selfoss leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa endað í neðsta sæti Olís-deildarinnar eftir harða fallbaráttu við Stjörnuna.

Marte kom af miklum krafti inn í lið Selfoss og skoraði 50 mörk í tíu leikjum en hún endaði sem fjórði markahæsti leikmaður liðsins þrátt fyrir að hafa aðeins spilað tíu leiki á meðan aðrir leikmenn 21 leik.

Marte er þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur Selfoss frá síðustu leiktíð en auk systir hennar hefur markvörðurinn, Sara Xiao Reykdal gengið í raðir Fjölnis.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top