Stelpurnar tryggðu sér í undanúrslit eftir sigur á Alsír
IHF

Eftir tíu marka sigur íslenska stúlkna landsliðsins skipað leikmönnum 20 ára og yngri á Alsír í morgun er ljóst að liðið leikur í undanúrslitum í Forsetabikarnum á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína þessa dagana.

Alsír skoraði fyrsta mark leiksins og komst í 1-0 en það var í fyrsta og eina skiptið sem liðið var yfir í leiknum. Ísland náði strax forystu í leiknum og jók forystuna hægt og bítandi allan fyrri hálfleikinn og var sjö mörkum yfir í hálfleik 17-10. 

Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og náði mest tólf marka foyrstu en lokatölur 33-23 Íslandi í vil og liðið tryggði sér þar með sigurinn í sínum milliriðli í Forsetabikarnum og ljóst að liðið leikur um 17.sætið á mótinu, ásamt Egyptalandi, Brasilíu og Króatíu.

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir fór á kostum í liði Íslands í leiknum og skoraði tíu mörk og Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði sjö mörk. 

Markvarslan var mjög góð hjá íslenska liðinu, Elísabet Millý Elíasardóttir varði 10 skot og var með 41% markvörslu auk þess sem hún skoraði eitt mark í leiknum og Sif Hallgrímsdóttir varði fimm skot og endaði með 38% markvörslu.

Markaskorar Íslands: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 10, Guðrún Hekla Traustadóttir 7, Hulda Hrönn Bragadóttir 4, Sara Lind Fróðadóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 1,  Arna Karítas Eiríksdóttir 1, Sara Rún Gísladóttir 1, Elísabet Millý Elíasardóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top