Fóru illa að ráði sínu gegn Færeyjum
HSÍ

Stelpurnar í U16 ára landsliði Íslands fóru illa að ráði sínu á loka mínútunum í leik sínum gegn Færeyjum í morgun á Opna Evrópumótinu sem fer fram í Gautaborg.

Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 2-0 og héldu forystunni í leiknum nær allan leikinn. Ísland var einu marki yfir í hálfleik, 7-6 en Kristín Einarsdóttir fór mikinn í sóknarleik Íslands og skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik.

Íslensku stelpurnar hófu seinni hálfleikinn af krafti og komust í 15-9 eftir að Elma Kolbrún Bjarnadóttir hafði komið Íslandi í sex marka forystu.

En þá fór allt í baklás hjá íslenska liðinu og nýttu færeysku stelpurnar sér það og náðu á einhvern ótrúlegan hátt að jafna leikinn og lokatölur 15-15. 

Þessi úrslit reyndust mikilvæg fyrir færeyska liðið sem dugði jafntefli til að vera fyrir ofan Ísland í riðlinum. Það skýrist síðar í dag hverjum íslenska liðið mætir í lokaleik sínum á mótinu.

Markaskorar Íslands: Kristín Einarsdóttir 6, Elma Kolbrún Bjarnadóttir 3, Þórhildur Káradóttir 2, Emilía Guðný Magnúsdóttir 2, Matthildur Helga Ólafsdóttir 1, Sara Sigurvinsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top