Íslenska U20 ára landslið kvenna lauk keppni á heimsmeistaramótinu með sigri á Brasilíu, 30:27, og hafnaði í 19. sæti mótsins. Ísland hafði nauma forystu í hálfleik, 15:14, áður en liðið tryggði sér þriggja marka sigur í síðari hálfleik. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með tíu mörk, en Sif átti einnig góðan leik í markinu. Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari liðsins, var ánægður með frammistöðu sinna leikmanna eftir leikinn. „Mér fannst þetta vera frábær frammistaða gegn sterku liði Brasilíu. Varnarleikurinn heilt yfir var frábær og Sif var góð fyrir aftan í markinu. Sóknarleikurinn var upp og niður en færanýtingin var miklu, miklu betri en í gær og það voru miklu meiri gæði í því sem við vorum að gera,“ sagði Halldór Stefán. Aðstæður á leikstað reyndu einnig verulega á leikmenn beggja liða. „Við vorum að spila við rosalega erfiðar aðstæður. Það var í kringum 40 gráðu hiti, allir rennandi sveittir og boltinn blautur. En það er gríðarlega sterkt að enda mótið á sigri og líka með þokkalegri heilsteyptri frammistöðu alls liðsins,“ sagði hann. Sigurinn á Brasilíu tryggði íslenska liðinu 19. sætið á heimsmeistaramótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.