Í beinni U20 kvenna: Ísland – Brasilía
IHF

Eftir þrjá sigurleiki í röð á heimsmeistaramóti U20 ára kvenna í Kína tapaði íslenska landsliðið gegn Egyptalandi í gær í undanúrslitum í Forsetabikarsins.

Þar með er ljóst að liðið mætir því brasilíska í lokaleik sínum á mótinu í dag klukkan 8:15.

Brasilía tapaði í gær gegn Króatíu eftir vítakastkeppni og það má því búast við hörkuleik hjá stelpunum. Sigurvegari leiksins tryggir sér 19. sætið á mótinu.

Leikur Ísland og Brasilíu er sýndur beint á Youtube og hægt er að nálgast beint streymi af leiknum hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top