U18 stelpurnar höfðu betur gegn Póllandi
HSÍ

Stelpurnar í U18 ára landsliði Íslands höfðu betur gegn Póllandi í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fara fram í Póllandi.

Íslenska liðið hóf leikinn betur og komst strax í 2-0 en um miðbik fyrri hálfleiks var staðan 8-7 Íslandi í vil. Íslenska liðið fór með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, en staðan var 16-14.

Seinni hálfleikur byrjaði að krafti og komust íslenska liðið snemma í fjögurra marka forystu í stöðunni, 23-19. Þá fékk liðið hinsvegar tvisvar tvær mínútur og minnkaði pólska liðið muninn í eitt mark í stöðunni 24-23. Síðan tók aftur við góður kafli hjá íslenska liðinu og lauk leiknum með sex marka sigri 38-32.

Hekla Sóley Halldórsdóttir var markahæst með sjö mörk og Valgerður Elín Snorradóttir kom næst með sex mörk. Danijela Sara Björnsdóttir varði 9 skot í leiknum og Erla Rut Viktorsdóttir varði sex skot.

Stelpurnar leika seinni vináttulandsleik sinn gegn Póllandi á þriðjudaginn.

Markaskorara Íslands:

Hekla Sóley Halldórssdóttir - 7 mörk
Valgerður Elín Snorradóttir - 6 mörk
Laufey Helga Óskarsdóttir - 5 mörk
Tinna Ósk Gunnarsdóttir - 5 mörk
Katla Kristín Hrafnkelsdóttir - 3 mörk
Roksana Jaros - 3 mörk
Vigdís Arna Hjartardóttir - 3 mörk
Eva Lind Tyrfingsdóttir - 2 mörk
Dagný Þorgilsdóttir - 2 mörk
Eva Steinsen Jónsdóttir - 1 mark
Klara Káradóttir - 1 mark

Danijela Sara Björnsdóttir - 9 varðir boltar
Erla Rut Viktorsdóttir - 6 varðir boltar

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top