U18 ára kvennalandslið Íslands í hóf æfinga- og keppnisferð sína í Póllandi með góðum sigri á heimakonum í fyrri vináttulandsleik liðanna í gær. Ísland hafði betur 38-32 eftir að hafa leitt með tveimur mörkum í hálfleik 16-14. Hekla Sóley Halldórsdóttir var markahæst í liði Íslands í gær með sjö mörk og Valgerður Elín Snorradóttir skoraði sex. Seinni vináttulandsleikur þjóðanna fer fram á morgun. Handkastið heyrði í Grétari Áka Andersen þjálfara liðsins og spurði hann aðeins út í leikinn í gær. „Það sem ég var mest ánægður með voru skrefin sem við tókum varnarlega. Við vorum að framkvæma mikið af því sem við lögðum upp með, þorðum að stíga hátt út í vörninni og vinna stöðurnar maður á mann." ,,Sóknarlega gekk okkur mun betur í seinni hálfleik. Í þeim fyrri vorum við aðeins of fljótar að taka ákvarðanir sem varð til þess að við töpuðum boltanum of oft. Í seinni hálfleik keyrðum við hins vegar mun betur á þær, sem skilaði sér í mörgum góðum færum og mörkum.“ Hann sagði að mikil áhersla hafi verið á varnarleikinn fyrir leikinn í gær. „Helstu áherslurnar voru varnarlega, að þora að vera ofarlega í varnarlínunni og taka á móti þeim þar. Við ætluðum líka að keyra grimmt á þær frá upphafi leiks, en þar eigum við enn inni." ,,Við þurfum einnig að bæta skiptingarnar milli þristanna í vörninni. Við vorum farin að lesa klippingarnar hjá þeim ágætlega en getum gert það enn betur. Sóknarlega þurfum við að láta boltann ganga meira á milli leikmanna.“ Hann segir að sama uppskrift verði fyrir leikinn á morgun. „Við höldum áfram á sömu braut, en nú vitum við aðeins betur við hverju má búast. Þær spila mikið af klippingum og nýta skytturnar vel, þannig að þetta verður góð æfing fyrir okkur í að skila af og taka við næsta manni í vörninni. Sóknarlega gekk okkur mun betur í seinni hálfleik að láta boltann vinna, en þar eigum við enn mikið inni. Við sáum líka nokkur atriði sem við getum nýtt okkur betur í næsta leik," sagði Grétar Áki Andersen að lokum í samtali við Handkastið beint frá Póllandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.