Bjarki Már hefur samið við stórlið
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Vinstri hornamaðurinn, Bjarki Már Elísson hefur samið við stórliðið, Paris Saint Germain í Frakklandi fyrir komandi leiktíð. Samningur Bjarka Más við félagið er til eins árs.

Bjarki Már gengur í raðir félagsins eftir fjögur tímabil með Veszprém í Ungverjalandi en samningur hans við félagið rann út um síðustu mánaðarmót.

Er Bjarka Má ætlað að fylla skarð franska landsliðsmannsins, Mathieu Grébille sem sleit hásina og verður frá keppni í nokkra mánuði.

Bjarki Már sem varð 36 ára í maí leikur því áfram í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en PSG hafa orðið franskir meistarar síðan 2015.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top