Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Árni Stefán Guðjónsson látið af störfum sem aðalþjálfari kvennaliðs FH eftir þrjú tímabil við stjórnvölinn. Árni Stefán tók við liðinu sumarið 2023 og stýrði því í þrjú tímabil. Á þeim tíma vann hann að uppbyggingu liðsins sem hefur verið í Grill66-deildinni. FH hafnaði í 4. sæti Grill66-deildarinnar á síðasta tímabili en tókst ekki að tryggja sér sæti í Olísdeildinni eftir tap gegn Stjörnunni í undanúrslitum umspilsins. Samhliða þjálfarastarfinu hefur Árni Stefán unnið fyrir Viðreisn í Hafnarfirði og eftir kosningarnar í vor varð ljóst að Árni Stefán vann sér inn sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Eftir það varð ljóst að Árni Stefán þyrfti mögulega að hætta sem þjálfari FH-liðsins vegna anna. Hvorki FH né Árni Stefán hafa staðfest brotthvarfið opinberlega en samkvæmt heimildum Handkastsins er félagið þegar búið að ráða nýtt þjálfarateymi fyrir komandi tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.