Ragnheiður Sæunn Aðalsteinsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni til næstu tveggja ára en hún er uppalin hjá félaginu. Ragnheiður spilar sem skytta og er einnig öflugur varnarmaður. "Það er okkur mikið ánægjuefni að Ragnheiður verði áfram í Fjölnislitunum. Hún er uppalin hjá félaginu og hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin ár. Við hlökkum til að sjá hana halda áfram að vaxa með liðinu og óskum henni innilega til hamingju með nýja samninginn" segir Meistaraflokksráð kvenna í tilkynningu frá félaginu.
"Ég hlakka til frábærs tímabils og til að leggja mitt af mörkum með þessum geggjuðu stelpum" bætti Ragnheiður jafnframt við í tilkynningu frá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.