Svona getur þú fylgst með leikjum Íslands á EM U20 og U18 karla
HSÍ

Íslenska drengja landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri og 18 ára og yngri verða í eldlínunni á Evrópumótum í júlí.

EM U20 hefst 8.júlí á meðan Evrópumót U18 ára hefst 29. júlí. HSÍ auglýsti á samfélagsmiðla síðu sinni á dögunum að áhorfendur á Íslandi geta fylgst með öllum leikjum mótanna í beinni útsendingu í gegnum Handball Globe TV.

Handball Globe TV er rétthafi útsendinga á Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Slóveníu. Áhorfendur í öðrum löndum geta fylgst með leikjunum í gegnum EHF TV. Boðið verður upp á tvo kaupmöguleika fyrir bæði mótin:

Stakur leikur (Pay-per-view): 8 evrur. Innifalið er aðgangur að endurspilun leiksins.

All Access: 30 evrur. Veitir aðgang að öllum leikjum viðkomandi móts ásamt endurspilunum út árið 2026.

Leikir Íslands á EM U20:
Miðvikudagur:
14:00 Ísland - Austurríki

Fimmtudagur:
14:00 Ísland - Spánn

Laugardagur:
09:00 Ísland - Lettland

Útsendingar:

U20 EM karla

U18 EM karla

Athugið: All Access aðgangur gildir aðeins fyrir annað mótið í senn og þarf því að kaupa sér aðgang fyrir hvort mót ef fylgjast á með báðum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top