Tap hjá U18 í síðari leik þeirra við Pólland
HSÍ

Íslenska U18 landslið kvenna tapaði í dag síðari vináttulandsleik sínum við Pólland en liðið hafði unnið 38-32 sigur á sunnudaginn.

Í dag voru það hinsvegar heimastúlkur sem voru alltaf skrefinu á undan en pólska liðið tók strax forystu og skoruðu tvö fyrstu mörkin. Í hálfleik var staðan 13-10 Póllandi í vil.

Íslensku stelpurnar misstu þær pólsku aldrei langt frá sér en náðu heldur aldrei yfirhöndinni og endaði leikurinn með 25-24 tapi.

Tinna Ósk Gunnarsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 4 mörk, Vigdís Arna Hjartardóttir, Hekla Sóley Halldórsdóttir, Laufey Helga Óskarsdóttir og Valgerður Elín Snorradóttir skoruðu 3 mörk hver. Eva Steinsen Jónsdóttir, Eva Lind Tyrfingsdóttir og Klara Káradóttir skoruðu 2 mörk hver og Roksana Jaros og Dagný Þorgilsdóttir skoruðu eitt mark hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top