Þurfum að ná fram mjög góðri frammistöðu til að komast upp úr riðlinum
HSÍ

Íslenska U20 ára landslið karla hefur leik á Evrópumótinu í Rúmeníu á morgun þegar liðið mætir Austurríki í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Auk Austurríkis eru Spánn og Lettland í riðli Íslands á mótinu. Handkastið sló á þráðinn til Rúmeníu og heyrði í Ágústi Jóhannssyni þjálfara liðsins.

„Við komum til Rúmeníu seinni partinn í gær eftir ágætis ferðalag. Við tókum fund í morgun og æfum seinni partinn þar sem við tökum loka undirbúninginn fyrir fyrsta leikinn gegn Austurríki,“ sagði Ágúst.

Hann segir Austurríki vera með mjög sterkt lið og að Ísland þurfi að eiga góðan leik til að ná í úrslit.

„Austurríki hefur á að skipa mjög öflugu liði. Þeir hafa spilað einhverja tíu leiki á síðustu tíu mánuðum og náð góðum úrslitum. Við þurfum að vera mjög vel undirbúnir.“

Ágúst bendir sérstaklega á nokkra lykilmenn í liði Austurríkis.

„Þeir eru með mjög öfluga vinstri skyttu og stóran og sterkan línumann sem báðir hafa verið með A-landsliðinu þeirra. Þeir eru líka með sterkan miðjumann sem er einn af þeirra lykilmönnum. Þá eru þeir með spræka hægri skyttu og góðan vinstri hornamann.“

Ísland mætir til leiks með nokkuð breytt lið frá síðustu stórmótum, en Ágúst segir mikla orku í hópnum. Dagur Árni Heimisson og Garðar Ingi Sindrason voru í lykilhlutverki með liðinu á HM í fyrra en eru frá vegna meiðsla í ár. Þá sleit Marel Baldvinsson krossband snemma á tímabilinu og er enn að jafna sig.

„Við þurfum að ná fram mjög góðri frammistöðu til að ná í góð úrslit á morgun og við erum meðvitaðir um það. Við erum með breytt lið frá síðustu stórmótum en strákarnir eru sprækir og orkumiklir. Við áttum fína leiki gegn Færeyingum um síðustu helgi þannig að við mætum ferskir og vongóðir.“

Riðill Íslands verður krefjandi en Ágúst segir markmiðið skýrt að komast áfram.

„Riðillinn er mjög sterkur. Spánverjar eru mjög sterkir og hafa, líkt og Austurríki, spilað marga leiki undanfarið. Lettar hafa æft saman í fjórar til fimm vikur og spilað fjóra leiki gegn Finnum og Ísrael. Þeir unnu þrjá af þessum fjórum leikjum.“

„Við áttum okkur á því að við þurfum að ná fram góðri frammistöðu til að koma okkur upp úr riðlinum og það er klárlega markmið liðsins.“

Ágúst segir andann í íslenska hópnum vera góðan fyrir fyrsta leik.

„Stemningin í hópnum er góð og það er góður andi í liðinu. Menn eru spenntir að byrja þetta á morgun,“ sagði Ágúst Jóhannsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top