Var einfaldlega ekki nógu gott í dag
HSÍ

U18 ára landslið kvenna tapaði seinni vináttulandsleik sínum gegn Póllandi í dag, eftir að hafa unnið fyrri viðureign þjóðanna. Pólland hafði betur í leiknum í dag með einu marki, 25-24.

Grétar Áki Andersen, þjálfari liðsins, var ánægður með margt í varnarleiknum en sagði að sóknarleikurinn hefði ekki verið nógu beittur.

„Varnarlega vorum við góðar. Við kláruðum margar góðar varnir og þvinguðum við þær í marga tapaða bolta. Hins vegar misstum við stundum aðeins einbeitinguna þegar sóknir þeirra urðu langar og þá fengum við á okkur nokkur ódýr mörk. Við hefðum getað náð fleiri stoppum og keyrt hraðaupphlaup á þær,“ sagði Grétar.

Hann telur að liðið hafi ekki nýtt færin sín nægilega vel.

„Sóknarlega vorum við ekki með nægilega mörg svör og hefðum getað gert hlutina betur. Við komum okkur oft í góð færi en náðum ekki að nýta þau sem skyldi. Við fórum líka illa með fleiri opin færi en í fyrri leiknum og markverðir Póllands gerðu okkur erfitt fyrir.“

Grétar nefndi einnig ákveðin atriði í varnarleiknum sem þurfi að lagfæra. „Við lentum í smá vandræðum með skiptingar og rykkingar á línunni. Það var eitthvað sem gekk betur í fyrri leiknum og er atriði sem við höfum lagt mikla áherslu á. Það var einfaldlega ekki nógu gott í dag.“

Þrátt fyrir tapið segir Grétar verkefnið hafa verið afar mikilvægt fyrir þróun hópsins. „Þetta var mjög gott verkefni fyrir okkur. Við höfum aukið breiddina töluvert í hópnum því fjórir leikmenn komu nýir inn í þetta verkefni og stóðu sig allir mjög vel. Auk þess eru leikmenn heima á Íslandi sem komust ekki með vegna meiðsla og það eykur enn frekar breiddina í þessum árgangi.“

„Þetta var mikilvæg reynsla fyrir mig að sjá þessa leikmenn í leikjum og jafnframt fyrir þær að átta sig á því hvernig við getum náð því besta út úr okkur inni á vellinum.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top