Eftirmaður Árna Stefáns í Krikanum fundinn
Brynja T.

FH hefur samkvæmt heimildum Handkastsins gengið frá ráðningu nýs þjálfarateymis fyrir kvennalið félagsins sem leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð, líkt og síðustu ár.

Samkvæmt heimildum Handkatsins tekur Sigurjón Friðbjörn Björnsson við sem aðalþjálfari liðsins en hann starfaði sem aðstoðarþjálfari undir stjórn Árna Stefáns Guðjónssonar á síðustu leiktíð.

Honum til aðstoðar verður Stefán Harald Berg Petersen. Þeir Sigurjón og Stefán hafa áður unnið saman og þekkja því vel til hvors annars.

Ráðningarnar koma í kjölfar þess að Árni Stefán Guðjónsson lét af störfum sem þjálfari liðsins eftir þrjú tímabil við stjórnvölinn.

FH hafnaði í 4. sæti Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð og verður markmið nýja þjálfarateymisins án efa að leiða liðið í baráttuna um sæti í Olís-deildinni á komandi tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top