Ágúst meðal markahæstu leikmanna Evrópumótsins
Kristinn Steinn Traustason

Ágúst Guðmundsson nýr leikmaður FH í Olís-deild karla er í 5. sæti yfir markahæstu leikmenn Evrópumóts U20 ára sem fram fer í Rúmeníu eftir tvær umferðir keppninnar.

Ágúst sem gekk í raðir FH frá HK í sumar hefur farið afar vel af stað á mótinu og hefur hann skorað samtals 18 mörk í fyrstu tveimur leikjum Íslands.

Hann skoraði sex mörk gegn Austurríki í sigri íslenska liðsins og lét svo sannarlega til sín taka í leiknum gegn Spáni í gær þegar hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 12 mörk þrátt fyrir tap Íslands.

Íslenska liðið mætir Lettlandi í lokaleik riðlakeppninnar á morgun og hefst sá leikur klukkan 9:00 að íslenskum tíma. Þar gefst Ágústi tækifæri til að bæta enn frekar við markaskor sitt og styrkja stöðu sína á markalistanum.

Efstur á markalistanum eftir tvær umferðir er Slóveninn Aljuš Anžic með 26 mörk. Anžic er af mörgum talinn eitt allra efnilegasta handknattleiksefni heims um þessar mundir. Hann fæddur árið 2008 og er því enn gjaldgengur til leiks með U18 ára landsliði Slóveníu.

1Aljuš AnžicSlóvenía26
2Tiago CuencasSviss23
3Jákup EgholmFæreyjar20
4Alen HadzimuhamedovicBosnía19
5Ágúst GuðmundssonÍsland18
6Sadik Emre HersekliogluTyrkland17
7Valdis KalninsLettland16
7Márkó EklemovicUngverjaland16
9Gustav SunesenDanmörk15
10Asaf SharonÍsrael14
10Rino HochuliSviss14
10Manoy UgiagbeSviss14
10Lukas FritschAusturríki14

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top