Tekur slaginn áfram á Selfossi
Sævar Jónasson

Markvörðurinn, Selma Þóra Jóhannsdóttir hefur gert nýjan eins árs samning við Selfoss og ku ætla leika með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Eyþór Lárusson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið.

Selma kom inn í lið Selfoss í Olís-deildinni í febrúar á síðustu leiktíð og lék með liðinu seinni part tímabilsins. Selma lék fjóra leiki með liðinu en Selfoss féll úr deildinni eftir dramatík í lokaumferðinni er Stjarnan tryggði sér sæti í deildinni með jafntefli gegn Haukum í lokaumferðinni á meðan Selfoss tapaði stórt gegn ÍR.

Selma Þóra lék síðast með FH í Grill66-deildinni tímabilið 2022/2023 en hún hafði þar áður leikið með HK og Haukum en Selma er uppalin í Gróttu.

Selma er fædd árið 1998 býr á Selfossi en hún lék á árum áður með öllum yngri landsliðum Íslands og var auk þess valin í æfingahóp A-landsliðshóp Íslands árið 2017.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top