Karen Tinna framlengir við ÍR
ÍR

Karen Tinna Demian hefur framlengt samningi sínum við ÍR til ársins 2029.

Karen Tinna sneri til baka á völlinn í desember eftir barnseignir síðastliðið sumar og lék með ÍR í Olís-deild kvenna seinni hluta síðasta tímabils.

,,Karen er uppalin ÍR-ingur og hefur leikið lykilhlutverk í uppbyggingu meistaraflokks kvenna undanfarin ár. Við ÍR-ingar erum glaðir með framlengingu Karenar og hlökkum til að sjá hana ná fyrri styrk á næsta tímabili," segir í tilkynningunni frá ÍR en ljóst er að Karen leikur með liðinu næstu þrjú tímabil í það minnsta.

Karen Tinna skoraði fimm mörk í þeim tólf leikjum sem hún lék með ÍR á síðustu leiktíð en ÍR endaði í 4.sæti deildarinnar en tapaði gegn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar gegn Fram. Þá féll liðið einnig úr leik í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins eftir tap gegn Fram í hörkuleik.

Gera má ráð fyrir því að Karen Tinna verði í stóru hlutverki hjá ÍR á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top