Hildur Lilja Jónsdóttir verður ekki með Fram í Olís-deildinni á komandi keppnistímabili. Þetta staðfesti Haraldur Þorvarðarson þjálfari Fram í samtali við Handkastið. Samkvæmt Haraldi er hin örvhenta skytta á leið til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Lundar, þar sem hún hyggst stunda háskólanám. Hildur gekk til liðs við Fram frá Aftureldingu sumarið 2024 en þar áður hafði hún leikið eitt tímabil með Mosfellingum eftir að hafa yfirgefið uppeldisfélag sitt, KA/Þór, sumarið 2023. Hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki KA/Þórs árið 2020 og átti þátt í að vinna bæði Íslandsmeistaratitil og bikarmeistaratitil með Akureyrarliðinu. Þá lék hún einnig með yngri landsliðum Íslands á sínum yngri árum. Dvöl Hildar hjá Fram varð þó ekki löng en hún kom við sögu í níu leikjum liðsins í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Nú tekur við nýr kafli hjá henni í Svíþjóð þar sem námið verður í forgangi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.