Dóttir Kára Kristjáns framlengir í Eyjum
ÍBV

Línumaðurinn efnilegi, Klara Káradóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV og leikur því áfram með félaginu næstu tvö árin í það minnsta.

Klara lék síðasta vetur í liði 3.flokks ÍBV sem varð bikarmeistari ásamt því að vera hluti af meistaraflokki félagsins sem fór alla leið í úrslit Íslandsmótsins en tapaði gegn Val í úrslitaeinvíginu.

Klara hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og lék nú síðast tvo vináttuleiki með U18 ára landsliðinu gegn Póllandi fyrr í júlí.

,,Við erum afar ánægð með að hafa Klöru áfram í herbúðum ÍBV og hlökkum til áframhaldandi samstarfs," segir í tilkynningunni frá ÍBV en Klara er dóttir línumannsins, Kára Kristjáns Kristjánssonar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top