Landsliðskona frá Slóvakíu í KA/Þór

KA/Þór hefur samið við slóvakísku landsliðskonuna Lenku Ratvajská.

Lenka er 25 ára, örvhent og leikur í hægra horni. Hún kemur frá HK Slovan Duslo Šala og skrifar undir tveggja ára samning við KA/Þór.

Lenka hóf ferilinn hjá HC Bardejov en færði sig síðar til ŠŠK SLŠ Prešov. Þar lék hún í fimm ár með aðalliði félagsins í MOL-deildinni, sameiginlegri deild tékkneskra og slóvakískra liða. Árið 2021 gekk hún til liðs við Slovan Duslo Šaľa og hefur leikið þar síðan.

Lenka varð slóvakískur bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili auk þess sem liðið hafnaði í öðru sæti MOL-deildarinnar. Lenka hefur verið valin besti hægri hornamaður Slóvakíu síðustu tvö tímabil og hefur leikið um 30 opinbera landsleiki fyrir Slóvakíu.

Hún verður ekki eini erlendi örvhenti hægri hornamaðurinn í liði KA/Þór á næsta tímabili því að Joan Johannesen spilar líka þar en hún kom til liðsins fyrir stuttu frá Kyndli í Færeyjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top