Landsliðskonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur hafið nýjan kafla á handboltaferlinum eftir að hafa yfirgefið Fram í sumar og samið við þýska stórliðið Thüringer HC, ríkjandi Evrópudeildarmeistara. Hún segir félagið hafa verið fyrsta val þegar tækifærið gafst og telur skiptin vera mikilvægt skref í átt að frekari framförum á hennar ferli. „Thüringer HC er mjög öflugt félag með mikla sögu og sterka hefð. Ég fékk strax mjög góða tilfinningu fyrir félaginu og fann að þetta væri rétti staðurinn fyrir mig til að taka næsta skref á ferlinum. Það sem heillaði mig mest var metnaðurinn, umgjörðin og hvernig félagið vinnur að því að þróa leikmenn sína,“ segir Alfa Brá. Hún missti af lokakafla síðasta tímabils með Fram vegna meiðsla en segir bataferlið hafa gengið vel. „Staðan á mér í dag er góð. Ég er komin aftur á fullar æfingar og má gera allt. Nú snýst þetta fyrst og fremst um að byggja mig smám saman upp aftur, sérstaklega hvað varðar hlaupaálag og ákveðnar hreyfingar sem ég þurfti að fara varlega í meðan ég var að glíma við meiðslin.“ Thüringer HC er eitt sterkasta félagslið Evrópu og ríkjandi Evrópudeildarmeistari. Alfa Brá segir að það sé bæði spennandi og krefjandi að ganga til liðs við félagið. ,,Þetta er stórt skref fyrir mig og spennandi áskorun. Handboltinn er gríðarlega stór í Þýskalandi og maður finnur strax fyrir því hversu mikill áhugi er á liðinu og deildinni. Það er mjög hvetjandi að fá tækifæri til að vera hluti af svona öflugu félagi.“ Kærasti hennar, landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson, leikur einnig í Þýskalandi með MT Melsungen. Hún segir það hafa verið ákveðinn kost að geta verið nær honum, en að handboltalegar ástæður hafi ráðið úrslitum. „Ég skoðaði fleiri möguleika, en Thüringer HC heillaði mig mest sem handboltafélag. Það var vissulega stór kostur að geta verið nálægt Reyni og að við gætum búið saman, sérstaklega eftir að hafa verið í fjarsambandi síðasta árið. En það var ekki ástæðan fyrir því að ég valdi félagið. Ákvörðunin byggðist fyrst og fremst á því sem ég taldi best fyrir minn handboltaferil.“ Aðspurð um markmið sín fyrir fyrsta tímabilið segir hún mikilvægt að gefa sér tíma til að aðlagast nýju umhverfi eftir meiðslin. „Ég veit að fyrsta tímabilið getur verið krefjandi, sérstaklega þegar maður er að koma inn í nýtt lið og nýja deild. Ég vil því gefa mér tíma til að aðlagast og byggja mig vel upp eftir meiðslin. Markmiðið er að leggja mig alltaf 100 prósent fram, hjálpa liðinu eins og ég get og halda áfram að taka framförum sem leikmaður.“ Alfa Brá sem er uppalin hjá HK segist ekki gera ráð fyrir að neitt verði gefið þegar kemur að hlutverki sínu hjá liðinu. „Fyrsta markmiðið er að koma mér vel inn í liðið og aðlagast nýju umhverfi. Ég veit að ég þarf að vinna fyrir mínu hlutverki og það verður ekkert gefið. Ég ætla að leggja hart að mér á hverri æfingu og grípa þau tækifæri sem ég fæ.“ Alfa Brá telur að dvölin í þýsku úrvalsdeildinni muni hjálpa sér að taka næstu skref sem leikmaður. „Ég held að það muni gera mjög mikið fyrir mig að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Deildin er gríðarlega sterk og þar fæ ég að æfa og keppa á móti leikmönnum í hæsta gæðaflokki. Það mun án efa hjálpa mér að þróa leikinn minn bæði varnar- og sóknarlega. Maður fann það líka á heimsmeistaramótinu hvað munurinn getur verið mikill þegar maður mætir sterkustu leikmönnum heims og ég tel að þetta skref muni hjálpa mér að vera betur undirbúin fyrir slík verkefni.“ Þegar hún lítur til baka á árin þrjú hjá Fram er hún þakklát fyrir tímann hjá félaginu, bæði innan vallar og utan. „Ég er gríðarlega þakklát fyrir tímann minn hjá Fram. Þessi þrjú ár voru ótrúlega lærdómsrík og ég þróaðist mikið sem handboltakona. Ég eignaðist líka mínar bestu vinkonur þar og það er eitthvað sem skiptir mig miklu máli. Þótt okkur hafi ekki tekist að vinna titil á þessum tíma er margt sem ég er stolt af og ég á fullt af frábærum minningum sem ég mun alltaf taka með mér.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.