Aníta Rut framlengir við Fjölni

Aníta Rut Jónsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Fjölni.

Aníta Rut leikur sem skytta og er fædd árið 2009. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokks leik fyrir 2 árum fyrir félagið.

"Það gleður okkur mikið að Aníta hafi framlengt samning sinn við félagið. Við erum sannfærð um að hún eigi eftir að styrkja lið Fjölnis mikið á komandi árum og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun hennar.“ er haft eftir meistaraflokksráði kvenna í tilkynningu frá Fjölni í dag.

Aníta segist jafnframt í sömu tilkynningu frá Fjölni vera spennt fyrir komandi verkefnum. "Ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili og þeim tækifærum sem það býður upp á. Ég hlakka til að bæta mig sem leikmaður og leggja mig fram.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top