Ágúst Ingi Óskarsson er genginn til liðs við Íslands- og bikarmeistara Vals eftir aðeins eitt tímabil með Aftureldingu. Hann gekk í raðir Aftureldingar síðasta sumar frá Gróttu. Hann segir að áhugi Vals hafi kviknað fljótlega eftir að frétt á Handkastinu þar sem við greindum frá því að Ágúst Ingi hafi rift samningi sínum við Aftureldingu. „Róbert Gunnarsson hafði samband við mig þegar fréttin kom út hjá Handkastinu og spurði hvort þetta væri rétt. Eftir það fóru hlutirnir af stað,“ sagði Ágúst Ingi í samtali við Handkastið en Róbert þjálfaði Ágúst Inga hjá Gróttu á sínum tíma. Þrátt fyrir að fleiri möguleikar hafi verið í stöðunni segir hann að ákvörðunin um að ganga til liðs við Val hafi verið einföld. „Ég valdi Val því þetta er frábært lið og aðstaðan er upp á tíu. Síðan hjálpaði líka að ég þekki Robba vel," sagði Ágúst Ingi sem var samkvæmt heimildum Handkastsins langt kominn í samningaviðræðum við Stjörnuna. Ágúst Ingi rifti samningi sínum við Aftureldingu fyrr í sumar. Hann segir að upphaflega hafi stefnan verið að reyna fyrir sér erlendis. „Ástæðan fyrir því að ég rifti samningnum var sú að ég ætlaði að leita að einhverju ævintýri úti. Það kom áhugi í desember og þá kviknaði hjá mér löngunin til að prófa eitt ár erlendis.“ Hann útilokar ekki að hafa getað haldið áfram í Mosfellsbænum en segir að sýn hans og félagsins hafi ekki verið sú sama. „Það kom alveg til greina að vera áfram í Mosó, en mér fannst ég vera búinn að vinna mig inn ákveðið hlutverk. Þeir voru ekki alveg sammála því.“ Þrátt fyrir stutta dvöl á hann góðar minningar frá Aftureldingu. „Ég elska Mosó. Þetta er toppfélag með frábæra liðsfélaga, góða stjórn og svo strákana á trommunum, Listapúkann. Ég á bara góðar minningar þaðan.“ Nú tekur við nýr kafli hjá Hlíðarendafélaginu og Ágúst Ingi sem er uppalinn hjá HK segist spenntur fyrir því sem fram undan er. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni hjá Val. Þetta er risa klúbbur og risa tækifæri til að sanna mig.“ Hann gerir sér grein fyrir því að samkeppnin verði hörð en er tilbúinn að leggja sitt af mörkum „Hlutverkið mitt verður að koma inn af bekknum og gera það sem Gústi vill fá frá mér. Það er mitt að sanna að ég eigi heima í þessu liði.“ Valur leikur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á komandi tímabili og segir Ágúst Ingi að það hafi skipt miklu máli í ákvörðun sinni. „Já, auðvitað. Það vegur mjög þungt. Það verður ótrúlega spennandi að fá tækifæri til að spila á þeim vettvangi.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.