Hin unga og efnilega, Karen Sævarsdóttir sem fædd er árið 2009 hefur skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt, Fjölni og leikur með liðinu á næstu leiktíð í Grill66-deildinni. Í tilkynningunni frá Fjölni segir að Karen sem er miðjumaður, hafi sýnt stöðugar framfarir undanfarin misseri. ,,Hún er öflugur og fjölhæfur leikmaður sem hefur sérstaklega skarað fram úr í varnarleiknum. Á síðasta tímabili steig hún sín fyrstu skref með meistaraflokki og stóð sig afar vel." Í tilkynningunni segir enn fremur að meistaraflokksráð kvenna fagni því að Karen verði áfram hluti af liðinu og lítur á hana sem mikilvægan þátt í framtíð félagsins. „Það gleður okkur mikið að Karen hafi framlengt samning sinn við félagið. Við bindum miklar vonir við hana og hlökkum til að sjá hana halda áfram að þróast og ná enn lengra í Fjölni.“ Karen segist spennt fyrir komandi verkefnum: „Ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili og að vera hluti af liðinu. Ég hlakka til að halda áfram að þróast sem leikmaður og leggja mitt af mörkum.“ Fjölnir leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð undir stjórn Þórs Guðmundssonar sem tók við liðinu af Gunnari Val Arasyni sem stýrir karlaliði Fjölnis á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.