Markmiðið er að vinna deildina
FH

Sylvía Björt Blöndal er snúin aftur í raðir uppeldisfélags síns, FH, eftir dvöl í Danmörku þar sem hún sameinaði meistaranám og handbolta. Eftir að hafa slegið í gegn með Aftureldingu áður en hún hélt utan er hún nú mætt aftur í íslenska handboltann og ætlar sér stóra hluti með FH í Grill66-deildinni.

„Tilfinningin er mjög góð. Ég er mjög spennt fyrir næstu árunum í uppeldisfélaginu,“ sagði Sylvía um endurkomuna í Kaplakrika í samtali við Handkastið á dögunum.

Undanfarin tvö ár hefur Sylvía verið búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún lagði stund á meistaranám í Human Biology við Háskólann í Kaupmannahöfn. Samhliða náminu starfaði hún á Rigshospitalet við krabbameinsrannsóknir og lét handboltann ekki sitja á hakanum.

„Ég var að spila með BK Ydun í dönsku 1. deildinni á síðasta tímabili, þannig að ég náði að sameina námið og handboltann mjög vel.“

Þrátt fyrir að hafa skoðað möguleikann á að snúa aftur í Olís-deildina varð FH á endanum fyrir valinu.

„Það kom alveg til greina að skoða möguleikana á að spila aftur í Olís-deildinni. Ég vildi þó finna félag þar sem ég gæti bæði þróast sem leikmaður og tekið þátt í spennandi verkefni til lengri tíma.“

Hún segir metnaðinn hjá FH hafa skipt sköpum í ákvörðun sinni.

„Félagið sýndi mér mikinn áhuga og hafði mikinn metnað fyrir því að fá mig í liðið. Mér leist mjög vel á þjálfarateymið, aðstöðuna og æfingamenninguna. Plönin fyrir næstu tímabil og metnaðurinn hjá félaginu heilluðu mig. Þegar FH sýndi þennan mikla áhuga og kynnti fyrir mér framtíðarplönin fann ég fljótt að þetta væri rétta skrefið fyrir mig.“

Væntingarnar fyrir komandi tímabil eru skýrar, bæði hjá henni sjálfri og liðinu í heild.

„Markmiðið er skýrt: að vinna deildina og tryggja sæti í Olís-deildinni. Við erum með efnilegt og hæfileikaríkt lið og ég held að við höfum alla burði til að ná þeim markmiðum.“

Persónulega vill Sylvía fyrst og fremst koma sér vel fyrir í nýju hlutverki innan liðsins og nýta þá reynslu sem hún öðlaðist í Danmörku.

„Mitt helsta markmið er að komast fljótt og vel inn í leikkerfið og hlutverk mitt í liðinu. Ég vil nýta þá reynslu og þann þroska sem ég fékk erlendis til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum.“

Aðspurð hvað stuðningsmenn FH megi búast við frá henni á vellinum segir hún einfaldlega:

„Þau geta búist við kraftmiklum og metnaðarfullum leikmanni og mörkum. Mér finnst ég hafa þroskast mikið sem leikmaður úti í Danmörku og ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top