Valur Fannar og Bjarni Freyr framlengja við Fjölni

Handknattleiksmennirnir Valur Fannar Traustason og Bjarni Freyr Ásgeirsson hafa framlengt samninga sína við meistaraflokk karla hjá Fjölni.

Valur og Bjarni eru báðir fæddir árið 2009 og tilheyra efnilegum árgangi félagsins sem hefur verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Framlenging þeirra er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu handknattleiksdeildarinnar segir í tilkynningu frá félaginu.

Valur Fannar er öflugur línumaður og Bjarni Freyr er örvhent skytta.

"Við erum afar ánægð með að Valur og Bjarni verði áfram hluti af Fjölni. Báðir hafa þeir sýnt miklar framfarir, mikinn metnað og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Við hlökkum til að fylgjast með þeim taka næstu skref í meistaraflokki og leggja sitt af mörkum til liðsins á komandi árum.“ sagði Gunnar Valur Arason þjálfari meistaraflokks karla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top