Þjóðverjinn verður áfram á Selfossi
Egill Bjarni Friðjónsson

Þýski markvörðurinn Philipp Seidemann leikur áfram með Selfyssingum í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Örn Þrastarson þjálfari liðsins í samtali við Handkastið.

Philipp Seidemann gekk í raðir Selfoss í upphafi síðasta tímabils og lék með nýliðunum í Olís-deildinni. Hann varði að meðaltali tvö skot í leik og var með 28% markvörslu á síðustu leiktíð.

Philipp sem er 24 ára gamall, er alinn upp í akademíunni hjá Leipzig. Hann gekk til liðs við Selfoss frá Plauen Oberlosa sem leikur í þýsku 3. deildinni, þar áður lék hann með Glauchau Meerane og Dessau- Roßlauer.

Philipp Seidemann myndar markvarðarpar með Alexander Hrafnkelssyni en Selfoss endaði í 10.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en þjálfarabreytingar hafa orðið á liðinu en Örn Þrastarson tók við liðinu eftir að Carlos Martin Santos sagði upp samningi sínum við félagið og tók við Åranas í sænsku 1.deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top