Evrópumót karla skipað leikmönnum 18 ára og yngri hefst í vikunni í Serbíu þar sem Ísland verður meðal þátttökuþjóða. Íslenska landsliðið ferðaðist til Serbíu í nótt en Jóhann Ingi Guðmundsson markmannsþjálfari U20 ára karla landsliðsins greindi frá því á Facebook síðu sinni. Fyrsti leikur íslenska liðsins fer fram á miðvikudaginn þegar Ísland mætir Svartfjallalandi klukkan 12:30 að íslenskum tíma. Degi síðar, á fimmtudaginn, tekur Ísland á móti Ungverjalandi klukkan 17:30 áður en riðlakeppninni lýkur með leik gegn Sviss á laugardaginn klukkan 12:30. Ísland hefur á að skipa afar sterku liði og margir leikmenn þess léku stórt hlutverk í Olís-deild karla á síðustu leiktíð. Þar má meðal annars nefna Gunnar Róbertsson, sem var í lykilhlutverki hjá Íslandsmeisturum Vals, Frey Aronsson hjá Haukum og Ómar Darra Sigurgeirsson hjá FH. Allir þrír fengu þeir mikið traust hjá sínum liðum á síðasta tímabili og hafa nú tækifæri til þess að láta ljós sitt skína á alþjóðlegum vettvangi. Mótið er það 15. í sögu Evrópumótsins fyrir leikmenn 18 ára og yngri og fer fram í Serbíu dagana 29. júlí til 9. ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem Serbía heldur mótið. Alls taka 24 þjóðir þátt í mótinu, líkt og árið 2024 þegar keppnin var stækkuð. Úrslitaleikurinn fer fram í Belgrad. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins en liðið hefur þrjá þjálfara á mótinu sem er afar einstakt en Andri Sigfússon, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson eru allir þjálfarar liðsins. Liðið sigraði Ólympíuhátíð Evrópu-æskunnar á síðasta ári og fer því með mikið sjálfstraust til Serbíu auk þess sem liðið vann tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið. Allir leikir liðsins eru sýndir á gegn vægu gjaldi og eru aðgengilegir hér. Hópurinn á mótinu: Alex Unnar Hallgrímsson, Fram
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV
Anton Máni Francisco Heldersson, Valur
Bjarki Snorrason, Valur
Brynjar Narfi Arndal, FH
Freyr Aronsson, Haukar
Gunnar Róbertsson, Valur
Kristófer Tómas Gíslason, Fram
Logi Finnsson, Valur
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjarnan
Morgan Goði Garner, ÍBV
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR
Ragnar Hilmarsson, Selfoss
Sigurður Atli Ragnarsson, Valur
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.