Íslenska U18 ára landslið karla hefur leik á Evrópumótinu í Serbíu á morgun þegar liðið mætir Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum. Andri Sigfússon, einn af þremur þjálfurum liðsins, segir hópinn kláran í slaginn og að markmiðin séu klár. „Staðan á hópnum er mjög góð. Morgan Goði hefur verið seinustu daga stífur í hamstring en hann er orðinn góður. Það eru því allir heilir heilsu og klárir í fyrsta leik gegn Svartfellingum á morgun,“ sagði Andri en Morgan Goði er einn af þremur markvörðum í hópnum. Þjálfarateymið fer inn í mótið með mikla trú á sínum mönnum eftir góðan undirbúning og sterkan árangur undanfarinna mánaða. Þjálfarateymið er skipað þeim, Andra Sigfússyni, Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Snorra Steini Guðjónssyni. „Það er ekkert launungarmál að við stefnum hátt enda sýndu strákarnir getu sína á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar síðastliðið sumar. Á Sparkassen Cup milli jóla og nýárs náðum við að máta okkur við enn fleiri lið. Við erum því bjartsýnir fyrir þetta mót.“ Andri leggur þó áherslu á að liðið horfi ekki lengra en til fyrsta verkefnisins. „Hver leikur á sitt líf og grunnurinn að góðum árangri er að vera vel undirbúnir. Við erum það og þurfum því að taka einn leik í einu. Framundan er slunginn leikur gegn Svartfellingum.“ Íslenska liðið hefur lagt mikla vinnu í að kynna sér andstæðingana í riðlinum og segir Andri undirbúninginn vera eins góðan og kostur er. „Við erum með mikið og gott efni af andstæðingum okkar í riðlakeppninni. Við og strákarnir verðum vel undirbúnir fyrir andstæðinga okkar.“ Ísland hefur því alla leikmenn heila fyrir fyrsta leikinn sem hefst klukkan 12:30 á morgun á íslenskum tíma og mætir vel undirbúið til leiks gegn Svartfjallalandi. Íslenska liðið lék tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum í aðdraganda mótsins og vann þá báða. ,,Svartfellingar í fyrsta leik eru líkamlega sterkir og góðir maður á mann. Þeir spila oftast 6-0 varnarlega en byrjuðu leiki í undankeppni EM framarlega í 3-3. Þannig að við erum búnir undir hvort tveggja," sagði Andri að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.