Þetta kom í raun svolítið upp úr þurru
Sævar Jónasson

Línumaðurinn, Jón Ómar Gíslason hefur hafið nýjan kafla á ferlinum eftir að hafa gengið til liðs við austurríska úrvalsdeildarfélagið Bregenz. Hann skrifaði undir tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár og segir félagaskiptin hafa komið nokkuð óvænt upp.

Jón Ómar gengur í raðir Bregenz eftir eitt ár með Haukum þar sem hann varð bikarmeistari. Eftir tímabilið komst Jón Ómar og Haukar að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið.

„Þetta kom í raun svolítið upp úr þurru. Umboðsmaðurinn minn hafði samband við mig og sagði mér að Bregenz hefði áhuga á að ræða við mig. Þá fór ég að kynna mér félagið betur og átti góð samtöl við formanninn og þjálfarann. Eftir þau samtöl var ég sannfærður um að þetta væri rétta skrefið fyrir mig og það leið ekki langur tími þar til ég skrifaði undir samning,“ segir Jón Ómar.

Eftir að hafa yfirgefið Hauka í lok síðasta tímabils segir hann að markmiðið hafi verið að leita að tækifæri erlendis. Hann átti engar alvarlegar viðræður við önnur íslensk félög áður en samningurinn við Bregenz varð að veruleika.

Jón Ómar segir fyrstu kynni sín af nýja félaginu hafa verið afar jákvæð og að allt ferlið hafi gengið hratt fyrir sig.

„Samskiptin hafa verið mjög góð frá upphafi. Viðræðurnar gengu mjög hratt fyrir sig og þetta gerðist allt á frekar stuttum tíma. Ég skrifaði undir samninginn á meðan ég var í sumarfríi í Svartfjallalandi. Félagið vildi fá mig á fyrstu æfinguna, sem var 13. júlí, þannig að ég hafði í raun ekki tíma til að komast heim áður en ég flaug beint til Bregenz.“

Aðspurður hvað hafi heillað hann mest við félagið segir hann fagmennskuna hafa vegið þungt.

„Mér fannst þetta einfaldlega vera mjög spennandi tækifæri. Allt sem félagið kynnti fyrir mér var mjög faglegt og ég fékk strax góða tilfinningu. Einnig talaði ég við fólk sem hefur tengst félaginu og allir lýstu Bregenz sem frábærum stað, bæði til að búa á og spila handbolta.“

Hann vonast til að fá stórt hlutverk hjá liðinu, þótt það eigi eftir að skýrast betur þegar líður á undirbúningstímabilið.

„Vonandi verður hlutverk mitt stórt, en það á eftir að koma í ljós.“

Jón Ómar staðfestir að engin önnur erlend félög hafi verið í myndinni þegar Bregenz hafði samband. Hann skrifaði undir tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Það hafi einnig haft jákvæð áhrif á ákvörðunina að annar Íslendingur verði í herbúðum Bregenz á komandi leiktíð en Guðmundur Bragi Ástþórsson gekk einnig í raðir félagsins í sumar eftir tveggja ára dvöl í Danmörku.

„Já, það hjálpaði klárlega,“ segir Jón Ómar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top