Handkastið greindi á dögunum frá því að Kristófer Snær Þorgeirsson leikmaður Víkings í Olís-deild karla hefði orðið Íslandsmeistari í hástökki, þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað að æfa greinina fyrr í sumar. Kristófer sem er vinstri hornamaður ákvað að nýta sumarfríið frá handboltanum til að prófa eitthvað nýtt. Hann mætti á sína fyrstu hástökksæfingu hjá frjálsíþróttadeild Ármanns í byrjun sumars og árangurinn lét ekki á sér standa. Í viðtali við Sportpakkann á Sýn sagði Kristófer að ákvörðunin hefði verið einföld. „Það voru engar æfingar og mig langaði að gera eitthvað meira, prófa eitthvað nýtt. Ég sendi bara á þjálfarann hjá Ármanni og hann tók á móti mér, sá eitthvað í mér. Þannig að ég ákvað bara að bomba á það.“ Kristófer telur að hástökkið henti sér vel sem handknattleiksmanni, enda byggi báðar íþróttir meðal annars á sprengikrafti og stökkhæfileikum. „Já ég hoppa hátt og hleyp, þetta passar mjög vel við handboltann, það vantar bara kastið og þá væri þetta nákvæmlega eins.“ Þrátt fyrir að handboltinn verði áfram í forgangi hyggst Kristófer halda áfram að sinna hástökkinu samhliða æfingum með Víkingi, eftir því sem tími gefst. „Ég ætla að reyna, ef ég hef tímann í það. Mæti kannski einu sinni í viku og keppi á mótum þegar ég get.“ Hann útilokar heldur ekki að prófa fleiri greinar innan frjálsíþrótta í framtíðinni. „Kannski spretthlaupið, kannski langstökk. Ég á bara eftir að prófa þetta, maður veit aldrei hvað maður getur.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.