Nýliðarnir unnu FH og Fram rótburstaði Fjölni
Emma Elísa Jónsdóttir

Undirbúningur liðanna fyrir komandi tímabil er kominn á fullt skrið en þrír æfingaleikir fóru fram í vikunni að Handkastinu vitandi.

Fram hóf æfingaleikina með sannfærandi 46-26 sigri á Fjölni í Lambhagahöllinni á þriðjudag. Fjölnismenn eru með nýjan mann við stjórnvölinn en Gunnar Valur Arason tók nýverið við þjálfun liðsins. Mikið verkefni virðist bíða hans, en Fjölnir mætti auk þess án nokkurra lykilmanna í leiknum.

Á miðvikudag tók HK á móti Gróttu í Kórnum þar sem heimamenn höfðu betur, 32-30. Grótta, sem var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð, leiddi leikinn í hálfleik, 16-14, en HK sneri taflinu við eftir hlé og landaði tveggja marka sigri.

Þriðja og síðasta viðureign vikunnar fór fram í Virkinu á fimmtudagskvöld þegar nýliðar Víkings lögðu FH að velli, 34-33, í spennandi leik. Sigurinn gefur Víkingum góða byrjun á undirbúningstímabilinu fyrir endurkomuna í efstu deild en félagið hefur ekki riðið feitum hesti í deild þeirra bestu undanfarin ár.

Úrslit vikunnar:

  • Fram – Fjölnir 46-26
  • HK – Grótta 32-30 (14-16)
  • Víkingur – FH 34-33

Handkastið hvetur félög, þjálfara, stjórnarmenn og aðra forsvarsmenn liða til að senda upplýsingar um æfingaleiki, úrslit og markaskorara í aðdraganda komandi tímabils. Þannig getum við haldið lesendum sem best upplýstum um undirbúning liðanna fyrir keppnistímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top