Íslenska 18 ára karlalandsliðið lék í dag sinn þriðja leik á Evrópumótinu sem haldið er í Serbíu. Strákarnir mættu Sviss og unnu góðan sigur. Lokatölur urðu 33-28 eftir að staðan hafði verið 17-13 í hálfleik fyrir Íslandi. Strákarnir fengu fljúgandi start og komust í 5-0 og litu aldrei um öxl eftir það. Sannfærandi og góður sigur sem var aldrei í hættu hjá drengjunum. 3 sigrar komnir í röð hjá þeim og það verður gaman að fylgjast með þeim áfram í Serbíu. Alex Unnar Hallgrímsson og Gunnar Róbertsson voru markahæstir í dag með 7 mörk. Freyr Aronsson setti 5 mörk, Patrekur Smári Arnarsson skoraði 4 mörk, Brynjar Narfi Arndal með 3 mörk, Anton Frans Sigurðsson og Sigurður Atli Ragnarsson með 2 mörk, Matthías Þorsteinsson, Ragnar Hilmarsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru síðan allir með 1 mark. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði 6 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.