Eftir þrjá sigurleiki í þremur leikjum í riðlakeppni Evrópumótsins hefur íslenska U18 ára karla landsliðið tryggt sér sæti í milliriðli keppninnar. Ísland byrjar milliriðilinn með tvö stig. Í milliriðlinum ásamt Íslandi er Ungverjaland sem Ísland vann sannfærandi í riðlakeppninni. Þá eru einnig Króatía og Portúgal en Króatía byrjar milliriðilinn einnig með tvö stig eftir þriggja marka sigur á Portúgal í riðlakeppninni. Fyrsti leikur Íslands í milliriðlinum verður á morgun, 3.ágúst gegn Króatíu klukkan 15:00 og síðan mætir liðið Portúgal á þriðjudaginn klukkan 15:00. Leikið verður í CCS Sumice höllinni í Belgrad. Íslenska liðið hefur spilað einkar vel í fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu og unnið þrjá sannfærandi sigra. Nú bíður þeirra tveir leikir en með góðri frammistöðu í milliriðlinum vinnur liðið sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar sem verður að teljast formsatriði miðað við spilamennsku liðsins hingað til og hversu öflugt liðið er. Gunnar Róbertsson er markahæsti leikmaður íslenska liðsins á mótinu hingað til með 22 mörk en Alex Unnar Hallgrímsson og Freyr Aronsson koma næstir með 19 mörk hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.