Logi með eitt flottasta mark EM U18
Eyjólfur Garðarsson

Valsarinn, Logi Finnsson leikmaður íslenska U18 ára karla landsliðsins skoraði eitt af flottustu mörkum riðlakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Serbíu.

Íslenska landsliðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni en liðið mætir Króatíu klukkan 15:00 í dag í fyrsta leik þjóðanna í milliriðli keppninnar en bæði lið eru með tvö stig.

Logi skoraði glæsilegt mark undir lok leiks í sigri Íslands gegn Svartfjallalandi í fyrstu umferð Evrópumótsins eftir frábæra stoðsendingu.

Samfélagsmiðladeild EHF birti í gær fimm af flottustu mörkum Evrópumótsins að þeirra mati og þar var mark Loga á lista. Hægt er að sjá fimm flottustu mörkin hingað til í færslunni hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top