Íslenska U18 ára karlalandsliðið er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins eftir sannfærandi 37-29 sigur á Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðli keppninnar í dag. Á morgun klukkan 15:00 mætir íslenska liðið Portúgal í síðari leik sínum í milliriðlinum. Með sigri getur Ísland tryggt sér efsta sætið í milliriðlinum, sem gæti skipt miklu máli fyrir stöðuna fyrir átta liða úrslitin. Andri Sigfússon, einn af þremur þjálfurum íslenska liðsins, var afar ánægður með frammistöðuna gegn Króötum. „Við vorum frábærir stærstan hluta leiksins í dag gegn Króötum. Þeirra aðalsmerki er 5-1 varnarleikurinn sem truflaði okkur fyrstu mínútur leiksins. Við sýndum þolinmæði og vissum að okkar lausnir myndu virka. Það kom á daginn. Við fengum góðar opnanir sóknarlega og síðan náðum við að loka vörninni eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn. Morgan Goði hóf leikinn í markinu og var hrikalega flottur,“ sagði Andri. Hann hrósaði jafnframt liðinu fyrir að halda fókus allan leikinn. „Strákarnir héldu áfram að hamra járnið í síðari hálfleik og flottur sigur í hús. Þessi úrslit ásamt öðrum úrslitum í riðlinum þýða að við erum öruggir áfram í átta liða úrslit.“ Þrátt fyrir að sætið í átta liða úrslitum sé tryggt er enn miklu að keppa að sögn Andra. „Góður sigur gegn Portúgölum getur tryggt okkur besta árangurinn í 1. sæti milliriðlanna þriggja sem er mikilvægt upp á leikinn í átta liða úrslitum," sagði Andri en nái Ísland besta árangri liðanna í milliriðlunum þá fær liðið slakasta liðið sem kemst áfram, í 8-liða úrslitunum. Andri býst við erfiðum leik gegn Portúgal sem hefur sýnt góða takta á mótinu. „Portúgalar hafa á að skipa hröðu og skemmtilegu liði. Þeir eru ekki mjög hávaxnir en snerpa og ákefð er þeirra aðalsmerki. Það verður verðugt verkefni að mæta þeim.“ Að lokum sagði hann að vel hefði tekist til með að dreifa álaginu í sigrinum á Króatíu og því ætti liðið að mæta ferskt til leiks. „Við náðum að dreifa spilmínútum vel í leiknum þannig að allir ættu að vera ferskir fyrir leikinn gegn Portúgal. Við kortleggjum Portúgalana og við verðum með fund í hádeginu á morgun.“ Leikur Íslands og Portúgals hefst klukkan 15:00 á morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.